Einkenni

Hver eru merkin um að barn sé byrjað að neyta áfengis eða annarra vímuefna? Finnist áfengi, lyf eða áhöld til vímuefnanotkunar í fórum barns eru miklar

Fræðsla

Hver eru merkin um að barn sé byrjað að neyta áfengis eða annarra vímuefna?

Finnist áfengi, lyf eða áhöld til vímuefnanotkunar í fórum barns eru miklar líkur á að barnið sé í neyslu slíkra efna. Tiltekin hegðun getur einnig gefið vísbendinu um að barnið neyti vímuefna. Sérstaklega ef nokkur eftirtalinna atriða fara saman:

  • Snöggar breytingar á skapi og hegðun
  • Versnandi skólasókn og námsárangur eða ástundun í vinnu
  • Skyndilegur mótþrói við aga á heimili eða í skóla, óhlýðni við útivistarreglur
  • Versnandi samskipti og/eða einangrun frá fjölskyldu og gömlum vinum
  • Tengsl við nýja kunningja, einkum þá sem nota vímuefni
  • Depurð eða óútskýranleg reiði
  • Almennt áhugaleysi og doði
  • Breyting á svefn og matarvenjum
  • Mikil peningaþörf eða hnupl
  • Ósannsögli eða aukin leynd yfir athöfnum og eigum

Jafnvel þótt ofantalin atriði geti bent til vímuefnaneyslu geta þau einnig endurspeglað eðlilegt umrót unglingsáranna, eða verið merki um önnur vandamál. Með því að vera í góðri tengingu við barn þitt og þekkja kunningja þess og umhverfi ættirðu að geta komist að því hvort barnið hefur hafið neyslu eða ánetjast vímuefnum.

Ef þú telur að grunur þinn um vímuefnaneyslu barnsins sé réttur þarft þú að ræða það við barnið. Sýndu nærgætni og taktu skýrt fram að tilgangur þinn með spurningunum sé umhyggja þín og ást á barninu. Ekki koma með óréttlátar ásakanir. Talaðu opið um tilfinningar þínar og um áhyggjur þínar og biddu um svör. Vertu viðbúinn að barnið geri lítið úr vandanum eða neiti. Ekki taka gilt svar um að þetta hafi aðeins gerst einu sinni.

Senda fyrirspurn til samtakanna

Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska - Foreldrahús
Kennitala: 560586-1329
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti