Framkvæmdastjóraskipti urðu hjá Vímulausri æsku – Foreldrahúsi í dag, miðvikudaginn 1. febrúar. Hrafndís Tekla Pétursdóttir, sálfræðingur tók við starfinu af Jórunni Magnúsdóttur.
Hrafndís Tekla er með Dipl-Psych gráðu í klínískri sálfræði frá Þýskalandi. Hún hefur um áraraðir unnnið að meðferðarmálum ungmenna og sinnt ráðgjöf fyrir fjölskyldur. Þá hefur hún haldið ýmis konar námskeið því tengt. Hrafndís Tekla hefur starfað við fjölskylduráðgjöf Foreldrahúss frá árinu 2008 og sinnir þar sálfræðiþjónustu og ráðgjöf, auk annarra úrræða. Sömuleiðis sinnir hún sálfræðiþjónustu og ráðgjöf í "Litla Foreldrahúsinu" í Hafnarfirði. Hrafndís Tekla mun áfram sinna þeirri þjónustu með framkvæmdastjórastarfinu.
Kveður eftir 16 ára starf
Jórunn Magúsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri kveður nú samtökin eftir tæplega 16 ára starf. Jórunn hóf fyrst
afskipti af starfsemi Vímulausrar æsku árið 1996 en þá var hún í hópi öflugra foreldra sem létu sig málefni ungmenna
varða og vímuvarnarstarf. Jórunn var ráðin forstöðukona Foreldrahúss sem tók til starfa 8. apríl 1999 og hefur veitt Foreldrahúsi
forstöðu alla tíð síðan. Síðastliðin þrjú ár hefur Jórunn gegnt stöðu framkvæmdastjóra
Vímulausrar æsku – Foreldrahúss.
„Þetta er og hefur alltaf verið mér hjartans mál. Vænst þykir mér um að hafa getað lagt lið, hjálpað foreldrum og börnum þeirra sem hafa lent í grimmri glímu við vímuefni og vandamál þeim tengd. Það getur enginn sett sig í spor foreldra sem lenda í þessari stöðu með börnin sín en mestu skiptir að gefa aldrei upp vonina,“ segir Jórunn Magnúsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri.
Stjórn Vímulausrar æsku – Foreldrahúss færir Jórunni á þessum tímamótum einlægar þakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu samtakanna og þess mikilvæga starfs sem þar fer fram. Stjórnin óskar henni velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska