Aðvörun - Melanotan

Aðvörun - Melanotan Nýlega hafa borist til okkar fyrirspurnir frá foreldrum sem hafa orðið vör við notkun Melanotan „The barbie drug“ hjá börnunum sínum.

Aðvörun - Melanotan

Nýlega hafa borist til okkar fyrirspurnir frá foreldrum sem hafa orðið vör við notkun Melanotan „The barbie drug“ hjá börnunum sínum. Þó Melanotan sé ekki vímugjafi þá finnst okkur rétt að vara fólk við notkun þess.

Melanotan er efni sem er notað í þeim tilgangi að fá brúnann lit á líkamann án þess að vera í sól eða fara í ljós. Efninu er sprautað í líkamann.

Efnið er ekki samþykkt af FDA eða öðrum heilbrigðisstofnunum til notkunar.  Notendur hafa talað um aukaverkanir eins og að fæðingarblettir og freknur dekkist, ógleði og hiti, og einnig hafa margir talað um að eftir að notkun lyfins sé hætt, þá myndist hvítir blettir á húðina sem hverfa ekki og taka ekki við lit aftur.

Þar sem efninu er sprautað er einnig smithætta á HIV / HEP – C ef fólk deilir skömmtum og/eða nálum.

 


Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti