Undanfarin ár hafa verið viðburðarík og gefandi, en að mörgu leiti einnig býsna erfið. Ljóst er að afleiðingar af efnahagshruninu eru enn að koma í ljós. Erfiðleikar, peningaleysi og óöryggi hjá fjölskyldum landsins hafa að sjálfsögðu mikil áhrif á börnin og það höfum við fundið í okkar starfi. Nú í dag eru samtökin Vímulaus æska 25 ára og Foreldrahúsið fagnar 11 ára afmæli. Markmið samtakanna sem sett voru á stofndeginum eru enn í fullu gildi og þörfin er því miður brýn.
Hollt er að velta því fyrir sér á tímamótum sem þessum, hvað hefur áunnist og hver staðan væri, hefði samtakanna ekki notið við.
Við sem að starfinu stöndum erum þess fullviss að margt hafi áunnist og að samtökin njóti mikils trausts í samfélaginu. Við megum hvergi slaka á, hvorki í forvörnum né öðru sem snýr að heill barnanna okkar. Verkefnin vaxa stöðugt og málin verða sífellt erfiðari úrlausnar.
Þó mikið hafi áunnist á liðnum árum, verðum við að gera enn betur. Fjölmargir hafa í gegnum árin stutt starfsemi samtakanna með myndarlegum hætti og erum við afskaplega þakklát þeirri velvild sem samtökin njóta. Þess vegna hefur samtökunum tekist að lifa og halda úti þróttmiklu starfi í aldarfjórðung.
Á þessum tímamótum langar mig, fyrir hönd Vímulausrar æsku, að þakka af hjartans einlægni öllum þeim sem komið hafa að starfinu og stutt svo myndarlega við það.
Stjórn samtakanna er staðráðin í að efla enn frekar starfið og mun þess sjá merki á afmælisárinu. Við verðum að halda ótrauð áfram að styðja við börnin og foreldra þeirra. Slíkur stuðningur getur skipt sköpum fyrir framtíð barnanna og komið í veg fyrir að þau leiðist út í slæman félagsskap, ánetjist vímuefnum eða lendi í andstöðu við samfélagið.
Nú heiti ég á þig lesandi góður að leggja okkur lið í baráttu fyrir velferð barnanna okkar. Vímuvarnir hefjast heima. Við erum öll samábyrg þegar heill barnanna er annars vegar.
Kristján Guðmundssonformaður stjórnar Vímulausrar æsku
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska