Vímulaus æska - Foreldrahús efnir til afmælisfagnaðar laugardaginn 12. nóvember.
Vímulaus æska fagnaði þann 20. september sl. 25 ára afmæli og þykir rétt að minnast þeirra tímamóta með velunnurum samtakanna og kynna um leið það sem framundan er í starfseminni.
Dagskráin hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 17:00. Boðið verður upp á tónlist og leiklist fyrir unga jafnt sem aldna. Fram koma m.a. Ingó, Tríó Gumma Jóns og fulltrúar úr leikhópnum Lotta skemmta yngstu gestunum. Þá leikur Guðni Stefánsson ljúfa tóna á harmonikku. Léttar veitingar verða í boði.
Afmælisfagnaðurinn verður laugardaginn 12. nóvember í Borgartúni 6, II. hæð og eru allir hjartanlega velkomnir.
Nánar um dagskrá:
- 14:00 Guðni Stefánsson tekur á móti gestum með harmonikkutónum
- 14:15 Kristján Guðmundsson, formaður stjórnar Vímulausrar æsku býður gesti velkomna
- 14:45 Ingó leikur nokkur lög
- 15:15 Fulltrúar úr leikhópnum Lotta skemmta
- 15:45 Tríó Gumma Jóns leikur lög Guðmundar Jónssonar

Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska