Aðalfundur Vímulausrar æsku - Foreldrahúss fór fram fimmtudaginn 20. október sl. Á fundinum var Kristján Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar.
Álfheiður Einarsdóttir lét af stjórnarstörfum en í hennar stað var kjörinn Þráinn Bj. Farestveit. Í stjórn Vímulausrar æsku - Foreldrahúss sitja því Kristján Guðmundsson formaður, Ármann Kr. Ólafsson, Halldóra Ingibergsdóttir, Jón Trausti Jónsson, Jóna Hrönn Bolladótti, Stefán H. Stefánsson og Þráinn Bj. Farestveit.
Tillaga stjórnar um að félagsgjöld yrðu krónur 2.000 á æsta ári var samþykkt en það er óbreytt frá yfirstandandi ári.
Í skýrslu formannst stjórnar samtakanna kom fram að árið 2010 hafi verið viðburðaríkt og gefandi eins og ávallt en að mörgu leyti einnig býsna erfitt. Formaður stjórar sagði ljóst að afleiðingar af efnahagshruninu væru enn að koma í ljós. Erfiðleikar, peningaleysi og óöryggi hjá fjölskyldum landsins hefðu haft mikil áhrif á börin og það hafi starfsfólk Vímulausrar æsku - Foreldrahúss fundið glöggt í sínu starfi. Álag á starfsfólk hefði aukist töluvert og aukin spurn hefði verið eftir sjálfsstyrkingarnámskeiðum fyrir börn og ungmenni en árið 2010 sótutu yfir 450 börn og ungmenni af öllu landinu sjálfsstyrkingarnámskeið.
Rekstur samtakanna var í járnum árið 2010, enda hafa framlög hins opinbera dregist verulega saman, á sama tíma og þörfin virðist vaxa. Mikilvægi framlaga einstaklinga og fyrirtækja eykst því stöðugt.
Árið 2010 voru um 1.400 viðtöl í Foreldrahúsi en viðtöl sem tekin voru í síma voru á sama tíma yfir 1.300. Þeir sem sjá um þessi viðtöl og ráðgjöf eru fagráðgjafar samtakanna og sálfræðingur í Foreldrahúsi.

Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska