Vímulaus Æska - Foreldrahús býður til erindis með Dr. Harvey Milkman, prófessor í sálfræði næstkomandi fimmtudag, 12.janúar. Dr. Harvey mun fjalla um " Natural Highs: Orchestrating Healthy Changes in the Brain, Mind and Body". Dr. Harvey flytur erindi sitt í húsnæði Vímulausrar æsku, Borgartúni 6, 2. hæð og hefst það klukkan 9:30.
Dr. Harvey er vel kunnugur meðferðamálum ungmenna með hegðunar- og vímuefnavanda og hefur haldið nokkur námskeið á síðastliðnum árum á Íslandi. Hann mun m.a. halda námskeið fyrir Háskólann í Reykjavík í vikunni undir yfirskriftinni "Craving for Ecstasy and Natural Highs and Working with At-Risk Youth".
Vímulaus æska boðar til fundarins með Dr. Harvey í samstarfi við Rannsóknarstofu um mannlegt atferli hjá Háskóla Íslands. Vinsamlegast boðið komu á netfangið: tekla@vimulaus.is fyrir miðvikudaginn 11. janúar.
Flýtilyklar
Dr. Milkman flytur erindi í Foreldrahúsi
12.01.2012
Leit
Viðburðir
Engir viðburðir á næstunni

Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska