Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU bs. hefur um árabil getið af sér gott orð og notið vinsælda meðal almennings, sem bæði hefur lagt sitt af mörkum við að gefa notaða hluti í nytjagáma Góða hirðisins og/eða verslað í markaðnum. Ágóðann af þessu samstarfi SORPU og íbúa hefur nú enn eitt sinnið gefið af sér en SORPA veitti í dag, föstudaginn 7. október, styrk af ágóða sölu nytjamuna í Góða hirðinum, rúmar 9,3 milljónir króna.
Styrkur var veittur til 11 aðila sem voru;
- NPA miðstöðin fyrir fræðsluefni fyrir ungt fatlað fólk,
- Drekaslóð fyrir fræðsluefni og námskeiðahald fyrir þolendur ofbeldis
- Vímulaus æska til stuðnings og úrræða fyrir ungt fólk
- Unghugar til eflingar og sjálfstyrkingar
- Félag heyrnarlausra til útgáfu á DVD-diski ætlaðan börnum til fræðslu um táknmál
- Fjölsmiðjan til kaupa á brennsluofni
- Heimili og skóli til fræðslu vegna eineltis
- Íþróttafélagið Ösp til greiðslu á húsaleigu fyrir skautaiðkun fatlaðra
- Hjálparstarf kirkjunnar fyrir inneignarkort
- Rauði Krossinn fyrir verkefnið Gott, hollt og ódýrt með Rauða Krossinum
- Samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða Krossins vegna námskeiðahalds.
Markmið SORPU er að auka meðvitund fólks um flokkun, endurvinnslu og stuðla að endurnýtingu úrgangs, minnka sóun og láta gott af sér leiða. Fyrirtækið leggur metnað í að styðja íslenskt samfélag með fjölbreyttum hætti. Gott samstarf starfsmanna endurvinnslustöðva SORPU og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gera að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni. Allt frá árinu 1999 hefur ágóði af sölu í Góða hirðinum runnið til góðgerðamála.
Vímulaus Æska þakkar Góða Hirðinum- SORPU fyrir þennan ómetanlega stuðning.
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska