05.10.2011
Náum áttum, opinn samstarfshópur um fræðslu- og forvarnamál efnir til morgunverðarfundar á Grand Hótel næstkomandi miðvikudag, 12. október undir yfirskriftinni "Til að forvarnir virki".
- Á fundinum flytur Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ erindi sem hann nefnir "Að vanda til verks - almennar forsendur".
- Sveinbjörn Kristjánssonm verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis fjallar um forvarnir, hvað virkar og hvað ekki.
- Loks fjallar Elín Lóa Baldursdóttir, framkvæmdastýra Jafningjafræðslunnar um jafningjafræðsluna, markmið og leiðir.
- Í lok fundarins verða opnar umræður. Fundarstjóri er Páll Ólafsson.
Fundurinn hefst klukkan 8:15 og stendur til klukkan 10.
Þátttökugjald er 1.500 krónur og er morgunmatur innifalinn í gjaldinu.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir klukkan 15 þriðjudaginn 11. október.
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska