Nýtt styrktarmannakerfi

Nýtt styrktarmannakerfi Á 25 ára starfstíma Vímulausrar æsku - Foreldrahúss hefur stuðningur fyrirtækja, félagasamtaka og ekki síst einstaklinga, skipt

Nýtt styrktarmannakerfi

Á 25 ára starfstíma Vímulausrar æsku - Foreldrahúss hefur stuðningur fyrirtækja, félagasamtaka og ekki síst einstaklinga, skipt sköpum fyrir starfsemina. Án þeirra velvildar hefði vart verið hægt að halda starfseminni svo lengi úti.

Á sama tíma og umfang starfseminnar vex og þörfin verður brýnni, hafa samtökin ákveðið að kynna nýtt styrktarmannakerfi. Með því geta einstaklingar og fyrirtæki gerst velunnarar Vímulausrar æsku – Foreldrahúss og styrkt starfsemina með föstum mánaðarlegum framlögum.

Í samstarfi við DalPay greiðslugáttina hefur verið sett upp einfalt og aðgengilegt skráningarform á nýjum vef Vímulausrar æsku, www.vimulaus.is

Þar er hægt að velja á milli þess að leggja starfseminni lið í eitt skipti eða mánaðarlega skuldfærslu af greiðslukorti gegnum örugga greiðslugátt.

Öll framlög skipta máli. Lítil framlög jafnt sem stór sýna þann hug sem landsmenn bera til samtakanna og þeirrar þjónustu sem þau veita og hafa veitt í gegnum árin.

Kynntu þér málið HÉR

Vímulaus æska - Foreldrahús þakkar veittan stuðning.


Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti