Niðurstöður rannsókna meðal unglinga í 10. bekk á Íslandi sýna að hlutfall unglinga sem varð drukkinn undanfarna 30 daga hefur lækkað úr 42% árið 1998 í aðeins 9% árið 2011. Hlutfall unglinga sem reykja daglega hefur lækkað úr 23% í 5% og hlutfall þeirra sem hafa prófað hass farið úr 17% í 13%. mbl.is greinir frá.
Í frétt mbl.is segir að þetta hafi verið tilkynnt á blaðamannafundi í Frankfurt í dag, sem haldinn var í tilefni af forvarnarátakinu Ungt fólk í Evrópu eða Youth in Europe, sem ráðist verður í í fjölmörgum borgum í Evrópu á næstu misserum. Er það byggt á íslenskri fyrirmynd, unnið í samstarfi við evrópskar borgir og sér Reykjavíkurborg um verkefnastjórnun, en Rannsóknir og greining um rannsóknirnar. Markmiðið er að minnka líkurnar á notkun fíkniefna meðal ungs fólks.
Á blaðamannafundi í Frankfurt í dag var tilkynnt að Actavis yrði áfram fjárhagslegur bakhjarl í Evrópu og nær samningurinn um samstarf til ársins 2016.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ávarpaði blaðamannafundinn og sagði að Íslendingar hefðu náð góðum árangri í baráttunni gegn fíkniefnaneyslu ungs fólks. Hann sagði að sá árangur hefði náðst með því að byggja forvarnirnar á rannsóknum. Þannig hefði til dæmis verið sýnt fram á að mikilvægt væri að ungt fólk verði klukkutíma á dag með fjölskyldu sinni, stundaði íþróttir eða tómstundir með vinum og hæfi ekki áfengisneyslu fyrr en um 17 til 19 ára aldur. Ef þetta gengi eftir væru minna en 1% líkur á að það leiddist út í eiturlyf. En ef áfengisneyslan hæfist um 13 til 14 ára aldur, þá væru líkurnar hinsvegar mun meiri.

Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska