Stofnfundurinn 20.september 1986

Stofnfundurinn 20.september 1986 Foreldrasamtökin Vímulaus æska fagna 25 ára afmæli þriðjudaginn, 20. september. Í tilefni tímamótanna verður meðal annars

Stofnfundurinn 20.september 1986

Frá stofnfundi Vímulausrar æsku 20. september 1986
Frá stofnfundi Vímulausrar æsku 20. september 1986

Foreldrasamtökin Vímulaus æska fagna 25 ára afmæli þriðjudaginn 20. september. Í tilefni tímamótanna verður meðal annars gefið út afmælisblað, sem kemur út með Fréttablaðinu að morgni afmælisdagsins. Sitthvað fleira verður gert á afmælisárinu og verður fjallað um það hér á vef samtakanna þegar nær dregur.

  • Samtökin voru formlega stofnuð í Háskólabíói laugardaginn 20. September 1986 að viðstöddum hátt í 500 manns.
  • Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, var heiðursgestur fundarins og Jón Helgason, þá dómsmálaraðherra sat einnig  fundinn. Leif Birgander, þáverandi formaður samtaka foreldra á Norðurlöndum gegn vímuefnum, flutti fundarmönnum kveðju Norðurlandasamtakanna og bauð íslendinga velkomna til samstarfs innan þeirra.
  • Fjölmargir sendu árnaðaróskir og hvatningu til stofnfundar samtakanna. Meðal þeirra voru Lionsklúbbur Vestmannaeyja, Samtök um græna framtíð, Flokkur mannsins, Samhyggð og þeir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Ólafur G. Einarsson þingflokksformaður sjálfstæðismanna.
  • Þegar að stofnfundinum kom höfðu 9.000 manns skráð sig í samtökin.
  • Samþykkt var á stofnfundinum að árgjald yrði 250 krónur.
  • Á stofnfundinum var 24 manna aðalstjórn kjörin og í framhaldinu var kjörin fimm manna framkvæmdastjórn. Í henni sátu Bogi Arnar Finnbogason, formaður, Ragnheiður Guðnadóttir, varaformaður, Lisa Wium ritari, Arnar Jensson, gjaldkeri og Ómar Ægisson fræðslufulltrúi.
  • Magnús Bjarnfreðsson, þá fréttamaður Sjónvarps var fundarstjóri á stofnfundinum.
  • Á stofnfundinum léku hljóðfæraleikarar lög af hljómplötu sem ákveðið hafði verið að gefa út til styrktar samtökunum. Fjölmargir listamenn gáfu tónverk sín og flutning m.a. Bjarni Tryggvason, Herbert Guðmundsson, Gunnar Sverrisson, Magús Þór Sigmundsson og Skriðjöklar. Lag Skriðjöklanna „Tengja“ var eitt laganna sem kom út á plötunni „Vímulaus æska“.
  • Hljómplatan kostaði 800 krónur og sama verð var á kassettunni. Þeir sem keyptu hvort tveggja þurftu aðeins að greiða 1.400 krónur fyrir.
  • Sex menn og konur hafa gegnt formennsku í Vímulausri æsku frá stofnun samtakanna haustið 1986. Fyrsti formaður samtakannna var kjörinn Bogi Arnar Finnbogason og er hann jafnframt sá sem lengst hefur gegnt formennsku eða í rösk 9 ár. Anna Ólafsdóttir Björnsson var formaður samtakanna í rúm 8 ár.

Bogi Arnar Finnbogason 1986 – 1995
Ragnar Gíslason 1995 – 1996
Sæmundur Hafsteinsson 1996 – 1998
Anna Ólafsdóttir Björnsson 1998 – 2006
Ólöf Ásta Farestveit 2006  - 2010
Kristján Guðmundsson 2010 -


Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti