„Tilfinning okkar er að neysla barna sé að aukast og að vandamálin séu umfangsmeiri,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, unglingaráðgjafi hjá Foreldrahúsinu í viðtali við Morgunblaðið í dag. Foreldrahúsið veitir ráðgjöf vegna vímuefnavanda ungmenna.
Guðbjörg segir í samtali við Morgunblaðið að bið eftir að komast á meðferðarstofnanir hafi lengst og þar af leiðandi séu krakkarnir lengur úti í neyslu. Hún segist óttast að niðurskurður í stoðþjónustu í grunnskólum landsins á undanförnum árum hafi haft slæm áhrif á þennan hóp barna sem sé í áhættu.
Í Morgunblaðsgreininni segir að samkvæmt tölum Barnaverndarstofu hafi borist 388 tilkynningar á fyrstu sex mánuðum þessa árs um fíkniefnaneyslu barna. Fleiri en ein tilkynning getur varðað sama barnið. Á fyrri hluta síðasta árs voru tilkynningarnar 408. Tilkynningum um að barn stefni eigin heilsu og þroska í hættu voru 513, en 484 í fyrra.
Í ítarlegri umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að rýmum á meðferðarheimilum fyrir unglinga hefur fækkað á seinni árum og þangað fara nú aðeins erfiðustu unglingarnir sem illa gengur að meðhöndla með hefðbundnum aðferðum.

Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska