Vímulaus Æska - Foreldrahús eru grasrótarsamtök sem eru starfandi fyrir allt landið. Samtökin voru stofnuð 20 september 1986 og reka nú Foreldrahúsið í Borgartúni 6 í Reykjavík og "Litla Foreldrahúsið" í gamla bókasafninu - Mjósundi 10 í Hafnarfirði.
Í Foreldrahúsinu er starfræk fjölskylduráðgjöf, foreldrahópar, sjálfstyrkingarnámskeið og stuðningsmeðferð.
Þegar daglegri starfsemi lýkur tekur foreldrasíminn 581-1799 við, en hann er opinn allan sólarhringinn.
Þú getur skráð þig í samtökin með þvi að fylla út formið hér að neðan.
Einnig er hægt hringja í síma 511-6160 milli kl. 09:00 og 16:00 virka daga eða senda póst á vimulaus@vimulaus.is
Árgjald er kr. 2.000,- og er félagsmönnum sendur greiðsluseðill eftir lok aðalfundar ár hvert.