Sjálfsstyrkingarnámskeið Foreldrahúss
Efling sjálfsþekkingar og félagslegra tengsla barna og unglinga
Megin markmið námskeiðsins er að hlúa að og byggja upp:
• Sjálfstraust
• Félagsfærni
• Samskiptahæfni
• Tilfinningaþroska
• Sjálfsþekkingu
Námskeiðinu er ætlað börnum og unglingum á aldrinum 10 ára til 17 ára (5.bekk til 1.bekk í framhaldsskóla). Aldursskipting miðast
við að hafa tvo árganga saman og að kynjaskipta 12 ára og eldri. Lengd námskeiðanna er 18 klukkustundir sem dreifast yfir 12vikna tímabil eða eina
skólaönn. Námskeiðin hefjast á haustönn í september og í janúar á vorönn. Einnig er boðið upp á
sumarnámskeið þar sem að tímafjöldinn dreifist á 3 vikur.
Nálgunin felst í að byggja upp í sameiningu traust og öruggt umhverfi þar sem allir fá tækifæri til þess að njóta sín
á sinn hátt. Leiðbeinendur sameina hæfni á sviði sköpunar og mannlegra samskipta og þannig aðstoða börnin og unglingana við að beita
innsæi, getu, reynslu og tjáningu til að ná félagslegri og tilfinningalegri kjölfestu.
Þau viðfangsefni sem þátttakendurnir fá tækifæri til vinna með og skoða eru samskipti, tilfinningar og tengsl sín við sitt nánasta
umhverfi ; fjölskyldu, vini og skóla. Boðið er upp á margar leiðir til þess að opna sig og tjá sig út frá ofangreindum viðfangsefnum
eins og t.d. myndlist, leikrænni tjáningu og hreyfingu. Með því er verið að efla sjálfstæði, sköpun, tengsl, sjálfsþekkingu og
samvinnu. Hlustun og munnleg tjáning er mikilvægir þættir sem haldið er vel utan um innan hópavinnunnar. Þannig fá allir að upplifa
þá virðingu, vinsemd og viðurkenningu sem þeir þurfa og eiga skilið.
Umsagnir barna
"Mér finnst þetta vera ótrúlega skemmtilegt námskeið og ég mæli með því."
"Mér fannst þetta æðislegt námskeið. Ég eignaðist líka góða vini. Mér líður mjög vel eftir þetta námskeið."
"Ógeðslega skemmtilegt námskeið fyrir alla sem vilja kynnast öðrum krökkum og læra samskipti. Bara fjör."
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska