VERA

Inngangur V.E.R.A.  er úrræði sem sett var á laggirnar þegar Félagsmálaráðuneytið veitti Foreldrahúsi í byrjun árs  2009 styrk til forvarnarstarfa fyrir

V.E.R.A. (Virðing, Efling, Reynsla, Auður)


Inngangur

V.E.R.A.  er úrræði sem sett var á laggirnar þegar Félagsmálaráðuneytið veitti Foreldrahúsi í byrjun árs  2009 styrk til forvarnarstarfa fyrir börn og unglinga sem og fjölskyldur þeirra. Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur og Hrafndís Tekla Pétursdóttir sálfræðingur tóku að sér umsjón og einnig framkvæmd úrræðisins ásamt öðru starfsfólki.Tekin var ákvörðun um að mæta þörfum sem flestra fjölskyldna sem þyrftu á stuðningi að halda sérstaklega  í ljósi  þeirrar afleiðinga sem efnahagsvandi þjóðfélagsins gætu leitt til. Þar af leiðandi var ákveðið að þátttökugjaldið væri í lágmarki og tæki mið af greiðslugetu flestra fjölskyldna. Einnig að hver fjölskylda fengi hámarks þjónustu í formi einstaklingsmiðaðar meðferðar útfrá heildrænni nálgun þar sem boðið var upp á einstaklingsviðtöl, foreldraviðtöl, fjölskylduviðtöl, skapandi hópastarf, foreldrahóp, fjölskyldukvöld og vettvangsferðir.Úrræðið VERA byggist á að veita börnum og unglingum á aldrinum 6-18 ára sem eru með áhættuhegðun að einhverju tagi  meðferð og  einnig öllum innan fjölskyldunnar. Meðferðin er  í formi einstaklings- og fjölskylduviðtala, hópastarfs og stuðnings.

Starfsfólk

Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur  og kennari  er með yfirumsjón úrræðisins einnig viðtöl og hópastarf. Elísabet útskrifaðist með M.A. í listmeðferð frá Englandi. Hún hefur unnið í fjölda ára með börnum og unglingum bæði sem kennari og í hópa- og einstalklingsmeðferðum. 
Hrafndís Tekla Pétursdóttir sálfræðingur er með yfirumsjón úrræðisins einnig viðtöl og hópastarf.   Hrafndís Tekla útskrifaðist með Dipl-Psych í klínískri sálfræði frá Þýskalandi. Hún hefur unnið um áraraðir að meðferðarmálum unglinga sem og ráðgjöf fyrir fjölskyldur og haldið ýmis konar námskeið.
Sigríður Birna Valsdóttir leiklistarmeðferðarfræðingur sinnir viðtölum og kemur að hópastarfi. Sigga Birna er með M.A. í leiklistarmeðferð frá New York og hefur unnið með börnum og unglingum í mörg ár bæði við kennslu og meðferð. Hún er sem stendur í mastersnámi í Fjölskyldumeðferð í HÍ.

Markmið

Meðferðarnálgunin í  VERU felst í að veita innsýn inn í þá áhættuhegðun sem einstaklingurinn glímir við. Áhættuhegðun getur haft skaðlegar afleiðingar í för með sér og með því að grípa inn í þetta ferli og veita þann stuðning, aðhald og ráðgjöf sem einstaklingurinn þarf á að halda.Áhættuhegðun er þegar einstaklingur er farinn að sýna hegðun sem getur leitt til skaða eða verið skaðleg gagnvart honum sjálfum  og/eða öðrum. Með sjálfsskaðandi hegðun er átt við andlegt , líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi , félagslega einangrun, erfiðleikar í skóla, afbrot, vímuefnaneysla, sjálfsvígstilraunir  og fíknir. Megin orsök áhættuhegðunar er vanlíðan af einhverju tagi sem getur stafað af margvíslegum þáttum og aðstæðum sem einstaklingurinn hefur upplifað og jafnvel býr við. Til að koma í veg fyrir frekari skaða og bæta líðan einstaklingsins er mikilvægt að hlúa einnig að fjölskyldu hans.  Þar af  leiðandi er mikilvægt að einstaklingurinn fái að tjá sig í öruggu og styðjandi umhverfi  bæði  einn og við aðra sem að honum koma. Því með aukinni getu  einstaklingsins og fjölskyldunnar  á að taka ábyrgð þörfum sínum og tilfinningum með virkri tjáningu og hlustun styrkjast tengslin og við þær aðstæður fær einstaklingurinn tækifæri á þroskast á heilbrigðan hátt.

Framkvæmd

Einkaviðtöl
Einkaviðtölin voru að jafnaði  2-4 sinnum í mánuði. Einstaklingurinn hafði sinn fasta meðferðaraðila og voru viðtölin regluleg og eftir samkomulagi. Í viðtölunum fékk einstaklingurinn tækifæri á að vinna með sinn vanda útfrá sínum forsendum.  Lögð var áhersla á að byggja upp traust, öryggi og trúnað. Allt sem viðkom meðferð einstaklings  var borið undir hann og gert með hans samþykki.

Foreldraviðtöl
Þau viðtöl fóru fram eftir þörfum foreldra /forráðamanna og sinnti meðferðaraðili barnsins þeirra, þeim viðtölum. Þar fengu foreldrar tækifæri á að koma sínu á framfæri og fá viðeigandi stuðning og staðfestingu.

Fjölskylduviðtöl
Þau fóru fram eftir þörfum allra og þá sérstaklega eftir þörfum einstaklingsins. Oftast var það meðferðaraðilinn sem var leiðandi og þá útfrá meðferðarferlinu. Í þessum viðtölum var allur gangur á því hvernig samsetningin var hvað varðar fjölskyldumeðlimi.

Hópastarf
Hópastarfið fór fram einu sinni í viku. Hver hópur samanstóð af 6-10 einstaklingum. Raðað var í hópa eftir aldri og kyni. Hópastarfið byggðist á að efla félagslegfærni og sjálfstraust einstaklingsins. Boðið var upp skapandi vinnu eins og myndlist, leiklist, tónlist, leiki og fleira.  Hver hópur fékk tækifæri á að skapa sína eigin stemmningu og fengu allir að vera með á sínum forsendum. Voru þó alltaf fastir liðir sem hélt utan um hópinn sem voru eftirfarandi: í byrjun hvers tíma sátu allir saman og ræddu um sig og atburði liðinnar viku,  í miðjum tíma var boðið upp á hressingu og endingu kveðjustund.

Foreldrahópur
Boðið var upp á  opinn foreldrahóp á  6 vikna fresti. Þar fengu foreldrar /forráðamenn og aðrir sem komu að uppeldi einstaklings tækifæri að spjalla um hlutverk sitt sem foreldri og fá stuðning frá öðrum foreldrum.

Fjölskyldukvöld
Í hverjum hópi var fjölskyldunni boðið að koma, að minnsta kosti einu sinni, og taka þátt í leikjum.  Á þessum kvöldum mættu foreldrar, stjúpforeldrar, systkini, ömmur og afar, frænkur og fændur. Einnig voru litlu jólin haldin fyrir alla þá sem í VERU voru og fyrir þeirra aðstandendur. Þá var boðið upp á veitingar og leiki.

Vettvangsferðir
Farið var í reglulegar vettvangsferðir með hverjum  hóp. Farið var í skautaferðir, klifur, safnaferðir, bíóferðir, Lasertag og út að borða. Flestar ferðirnar voru þeim að kostnaðarlausu en nokkrar niðurgreiddar.

Senda fyrirspurn til samtakanna

Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti