Fjölskylduráðgjöfin
Fjölskylduráðgjöfin í Foreldrahúsi er ætluð foreldrum og börnum í vanda. Í henni starfa sálfræðingur, vímuefnaráðgjafar og annað fagfólk. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða ráðgjöf.
Boðið er uppá sálfræðiþjónustu, ráðgjöf og meðferð barna og unglinga með hegðunar- og /eða áfengis- og fíkniefnavanda. Meðferð og ráðgjöf vegna almennrar vanlíðunar, depurðar, kvíða,félagslega einangrun,einelti, samskiptaerfiðleika í fjölskyldunni ofl.
Hver einstaklingur og hver fjölskylda fyrir sig hefur mismunandi vandamál og bregst við vandanum á mismunandi hátt. Vandamálin eru því oft ólík þrátt fyrir að flestir séu að takast á við einhvers konar vanlíðan sem birtist í ótal myndum. Oft er álagið orðið það mikið að foreldrar missa tökin og þurfa stuðning til að sinna öðrum börnum á heimilinu sem og til að sinna sjálfum sér. Leitast er við að mæta þeim vanda sem fjölskyldan glímir við og efla hana til bættra lífsgæða.
Tímapantanir hjá ráðgjöfum Foreldrahúss eru alla virka daga frá 9:00 – 16:00 í síma 511-6161
Þau sem annast ráðgjöf og viðtöl í Foreldrahúsi:
- Hrafndís Tekla Pétursdóttir, sálfræðingur
- Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi
- Kristín Snorradóttir, ráðgjafi
- Jórunn Magnúsdóttir, forstöðukona, hefur umsjón með Fjölskylduráðgjöfinni.
Senda fyrirspurn til samtakanna
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska