Stuðningshópurinn er úrræði fyrir unglinga á aldrinum 15-20 ára sem átt hafa við vímuefna vanda að stríða. Hér fá þau stuðning, aðhald og leiðsögn um hvernig skal takast á við lífið án vímuefna eftir að meðferð líkur.
Stuðningurinn samanstendur af hópmeðferð, einkaviðtölum og samveru um helgar. Hist er einu sinni í viku í hóp þar sem borðað er saman og svo er klukkustundar grúbba þar sem farið er yfir líðan, áhættur, hindranir og aðra hluti sem koma upp í daglegu lífi. Allir skjólstæðingar hafa kost á að koma í einkaviðtal hjá sínum ráðgjafa og hafa einnig aðgang að ráðgjöfum í síma 24 stundir á dag.
Ráðgjafarnir eru tveir, þær Guðbjörg Erlingsdóttir - ICADC og Brynhildur Jensdóttir - MA / ICADC. Stuðningshópurinn vinnur náið með forráðamönnum, barnaverndarfulltrúum og félagsráðgjöfum skjólstæðinga sinna.
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska