Foreldrahópar

Stuðningshópur fyrir foreldra Hjá Foreldrahúsi eru stuðnings/meðferðarhópar fyrir foreldra sem eiga eða hafa átt börn í vímuefnavanda.  Hóparnir hittast

Foreldrahópar

Stuðningshópur fyrir foreldra

Hjá Foreldrahúsi eru stuðnings/meðferðarhópar fyrir foreldra sem eiga eða hafa átt börn í vímuefnavanda.  Hóparnir hittast undir handleiðslu ráðgjafa þar sem unnið er að því að efla foreldra og styðja við þá.

Foreldrar verða fyrir miklu áfalli þegar í ljós kemur að barn þeirra er að nota fíkniefni. Erfiðar tilfinningar eins og sorg, reiði og ótti eru tilfinningar sem foreldrar upplifa ásamt skömm og því að vita ekki hvernig eigi að bregðast við vandanum. Oft er álagið orðið það mikið að foreldrar missa tökin og þurfa stuðning til að sinna öðrum börnum á heimilinu sem og til að sinna sjálfum sér. Eins eru sumir foreldrar að jafna sig eftir erfið áföll eins og ofbeldi eða yfirvofandi sjálfsvígshættu unglingsins.

Markmið með stuðningshópunum er að styðja við foreldra og að efla þá í að takast á við það að eiga barn eða hafa átt barn sem notar fíkniefni. Í stuðningshópunum er unnið með þær erfiðu tilfinningar sem foreldrar fara í gegnum, sjálfsmynd foreldra elfd og foreldrum veittar þær upplýsingar sem þeir þurfa varðandi úrræði fyrir barn í vímuefnaneyslu.

Í stuðningshópunum er leitast við að mæta hverjum og einum á einstaklingsmiðaðan hátt, því þó allir séu að takast á við sama vandan eru einstaklingar ólíkir og með ólíkar þarfir. Stuðningshópurinn er mjög öflugt verkfæri fyrir foreldra til þess að rjúfa þá einangrun sem oft fylgir því að eiga barn í neyslu. Jafbframt eru foreldrahóparnir mikilvægur stuðningur við foreldra sem eiga barn í vímuefnameðferð eða eru að taka á móti barni heim eftir að það líkur vímuefnameðferð.

Senda fyrirspurn til samtakanna

Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti