UM VÆ

Vímulaus Æska  - Foreldrahús eru grasrótarsamtök sem eru starfandi fyrir allt landið. Samtökin voru stofnuð 20 september 1986. Vímulaus æska rekur

Um Vímulausa æsku

Vímulaus Æska  - Foreldrahús eru grasrótarsamtök sem eru starfandi fyrir allt landið. Samtökin voru stofnuð 20 september 1986. Vímulaus æska rekur Foreldrahúsið í Borgartúni 6 í Reykjavík en það var opnað 8. apríl 1999. Í nóvember 2006 var opnað foreldrahús Vímulausrar æsku í Hafnarfirði og er það oft nefnt “Litla Foreldrahúsið”.

Samtökin sinna námskeiðahaldi og ráðgjafaþjónustu fyrir fjölskyldur sem eiga börn og unglinga í einhverskonar vanda. Á fyrri árum var að mestu unnið með vímuefnavanda unglinga. Í dag er þjónustan fjölbreyttari og er einnig unnið með ýmiskonar önnur vandamál, t.d einelti, félagslega erfiðleika og hegðunarvanda.

Samtökin hafa einnig staðið að fyrirlestrum víðsvegar á landinu í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög viðkomandi staða.

Starfsemi Foreldrahússins skiptist í tvo megin flokka; forvarnir og ráðgjöf.  
Í Foreldrahúsinu er starfrækt fjölskylduráðgjöf, foreldrahópar, sjálfstyrkingarnámskeið og stuðningsmeðferð.

Þegar daglegri starfsemi lýkur tekur foreldrasíminn 581-1799 við, en hann er opinn allan sólarhringinn.

Samtökin hafa frá upphafi verið öflug í útgáfu fræðsluefnis og hafa gefið reglulega út fjölda af tímaritum og forvarnarbæklingum. Einnig hefur verið gefið út fræðsluefni á geisladiskum og myndböndum.

Kennitala Vímulausrar æsku - Foreldrahúss: 560586-1329

Senda fyrirspurn til samtakanna

Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska - Foreldrahús
Kennitala: 560586-1329
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti