Samtökin Vímulaus æska – Foreldrahús voru stofnuð 20 september 1986 og fögnuðu því 25 ára afmæli á liðnu hausti. Fjölmörg fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafa allt frá upphafi léð verkefnum samtakanna lið og gert kleift að halda starfseminni gangandi. Fjölbreytt starfsemi fer fram í Foreldrahúsi í Borgartúni 6 og sömuleiðis í „Litla Foreldrahúsinu“ í Hafnarfirði. Samtökin hafa einnig staðið að fyrirlestrum víðsvegar á landinu, í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög viðkomandi staða.
Starfsemi Foreldrahússins skiptist í tvo megin flokka; forvarnir og ráðgjöf. Í Foreldrahúsinu er starfrækt fjölskylduráðgjöf, foreldrahópar, sjálfstyrkingarnámskeið og stuðningshópar.
Þegar daglegri starfsemi lýkur tekur Foreldrasíminn 581-1799 við, en hann er opinn allan sólarhringinn.
Styrktarmannakerfi Vímulausrar æsku - Foreldrahúss
Á sama tíma og umfang starfseminnar vex og þörfin verður brýnni, hafa samtökin ákveðið að kynna nýtt styrktarmannakerfi. Með því geta einstaklingar og fyrirtæki gerst velunnarar samtakanna og styrkt starfsemina með föstum mánaðarlegum framlögum. Í samstarfi við DalPay greiðslugáttina hefur verið sett upp einfalt, öruggt og aðgengilegt skráningarform á vef Vímulausrar æsku. Þar er hægt að velja á milli þess að leggja starfseminni lið í eitt skipti eða mánaðarlega skuldfærslu af greiðslukorti gegnum örugga greiðslugátt. Öll framlög skipta máli. Lítil framlög jafnt sem stór sýna þann hug sem landsmenn bera til samtakanna og þeirrar þjónustu sem þau veita og hafa veitt í gegnum árin.
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska