Í vorverkefni sínu þetta árið beinir Vímulaus æska athyglinni að fermingarbörnum. Efnt var til auglýsingarherferðar á útvarpsstöðvum í samvinnu við velunnara samtakanna. Auglýsingar birtast á útvarpsstöðvum en þar er hvatningarorðum beint til fermingarbarnanna.
Meðal hvatningarorða sem samtökin beina til fermingarbarna eru:
- Þegar þú fermist staðfestir þú ákveðinn sáttmála. Því ekki að staðfesta um leið bjarta framtíð án vímuefna?
- Þegar þú fermist kveður þú barnæskuna og staðfestir ákveðinn sáttmála við sjálfan þig. Því ekki að gera um leið sáttmála gegn notkun vímuefna?
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
