- STOFNUÐ Í HÁSKÓLABÍÓI
Vímulaus æska – foreldrasamtök fagna 25 ára afmæli nú í haust. Samtökin voru stofnuð formlega í Háskólabíói 20. September 1986 að viðstöddu fjölmenni, m.a. forseta Íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Um 10 þúsund félagsmenn skráðu sig í samtökin á fyrsta starfsárinu.
- FYRSTU HEIMKYNNIN
Samtökin voru fyrst til húsa í Síðumúlanum í Reykjavík en fluttu fljótlega í Borgartún 28, þar sem starfsemin var rekin til ársins 1993.
- FORELDRASÍMINN
Á fyrsta árinu var settur á fót Foreldrasíminn sem hafði það hlutverk að veita foreldrum barna í vímuefnavanda fyrsu ráðgjöf. Síminn hefur frá byrjun verið opinn allan sólarhringinn og hefur hringingum í hann fjölgað ár frá ári.
- LIONS QUEST
Vímulaus æska beitti sér fyrir því að tekið var í notkun lífsleikninámskeið Lions Quest fyrir efri bekki grunnskóla, sem þróað hefur verið í Bandaríkjunum.Lionshreyfingin á Íslandi studdi þýðingu og framleiðslu efnisins en Vímulaus æska sá um útgáfu á foreldrabókinni „Að ná tökum á tilverunni“ og dreifði bókinni í 10 ár til allra foreldra barna í 7. bekk grunnskóla.
- FORELDRANÁMSKEIÐ
Frá upphafi hafði Vímulaus æska forystu um forvarnafræðslu til foreldra og hannaði sérstök foreldranámskeið sem haldin hafa verið vítt og breitt um landið af starfsfólki samtakanna.
- FRÉTTABRÉF
Frá árinu 1986 hafa samtökin gefið út sérstök fréttabréf sem send hafa verið félagsmönnum og öðru áhugafólki um forvarnastarf. Gefin voru út 2-3 tölublöð af fréttabréfum árlega til ársins 2000. Frá árinu 2004 hafa samtökin gefið út fréttabréf í 100 þúsund eintökum og dreift á öll heimili með dagblöðunum.
- RÁÐSTEFNUR
Vímulaus æska hefur staðið fyrir fjölda ráðstefna og fræðslufunda um foreldrastarf, fíkniefnamál og forvarnir.
- NMN og EURAD
Frá 1986 hefur starfsfólk samtakanna ekið þátt í erlendu samstarfi meðal foreldrasamtaka á Norðurlaöndum, NMN og forvarnasamtaka í Evrópu, undir nafninu EURAD (Evrópa gegn fíkniefnum). Nokkrum sinnum hafa samtökin haldið ráðstefnurá Íslandi undir merkjum þessara samtaka.
- FRÆ
Samtökin Vímulaus æska og Íslenskir ungtemplarar (ÍUT) stofnuðu árið 1993 Fræðslumiðstöð í fíknivörnum (FRÆ). Markmiðið með þessari samvinnu var að efla faglega og fjölbreytta gagna- og upplýsingamiðlun í vímuvörnum. Frá árinu 1999 hefur FRÆ starfað sjálfstætt undir sérstakri stjórn sem skipuð er af ÍUT.
- GRENSÁSVEGUR 16
Frá árinu 1993 til 1999 var vímulaus æska með starfsemi sína að Grensásvegi 16 í Reykjavík en þar höfðu einnig aðstöðu ÍUT og FRÆ. Samnýting og stærra húsnæði skapaði ný tækifæri fyrir þessi samtök til að byggja upp sitt forvarnastarf.
- STÖÐVUM UNGLINGADRYKKJU
Árið 1994 stóð Vímulaus æska ásamt FRÆ að stofnun átaksins „Stöðvum unglingadrykkju“. Til liðs við átakið gengu síðan 80 stofnanir, samtök og fyrirtæki í landinu sem áhuga höfðu á forvarnastarfi meðal barna og unglinga. Framkvæmdastjóri verkefnisins var Valdimar Jóhannsson. Átakið stóð í 2 ár og áorkaði ýmsu af þeim markmiðum sem því voru sett í byrjun. Foreldrar vöknuðu til vitundar um eigin getu til að koma í veg fyrir unglingadrykkju. Stjórnvöld, sveitarfélög og lögregla hófu kynningarherferð á reglum um útivistartíma barna og unglinga. Landasala til barna og unglinga lagðist að mestu niður og mótshaldarar á útihátíðum hertu reglur um aldursmörk mótsgesta. Vakin var athygli á eftirlitslausum partíum meðal framhaldsskólanemenda og sérstakt átak gert í því að halda áfengislausar skólaskemmtanir.
- LENGI MUNA BÖRNIN
Í tengslum við átakið „Stöðvum unglingadrykkju“ gaf Vímulaus æska út foreldrabókina „Lengi muna börnin“ þar sem finna má 102 ráð fyrir foreldra til að vinna forvarnastarf í uppeldinu. Höfundar bókarinnar eru þeir Sæmundur Hafsteinsson og Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingar.
- FORELDRAHÓPURINN
Árið 1996 gekk foreldrahópurinn til samstarfs við Vímulausa æsku. Þar voru á ferðinni foreldrar sem allir áttu barn í vímuefnavanda og höfðu staðið saman í því að greiða götu þeirra til bata. Þessi hópur sá síðan m.a. um að koma upp skipulögðu foreldrastarfi með þeim foreldrum sem leituðu til samtakanna vegna vímuefnavanda barna sinna.
- FRÆÐSLUEFNI
Frá byrjun hafa samtökin staðið fyrir útgáfu á fjölbreyttu fræðsluefni í samstarfi við ýmsa aðila. Bæklingar og veggspjöld, auglýsingar og vefsíða eru helstu leiðirnar sem notaðar hafa verið til að fræða fólk um starf og markmið samtakanna.
- FORELDRAHÚS
Árið 1999 fluttu samtökin í nýja starfsstöð sem nefnd var Foreldrahús og var til húsa að Vonarstræti 4b í Reykjavík. Með tilkomu hússins varð þjónusta og ráðgjöf til foreldra fjölbreyttari og með tímanum hefur Foreldrahús orðið miðstöð ráðgjafar og námskeiðshalds á vegum Vímulausrar æsku.
- NÁMSKEIÐIN
Í Foreldrahúsi hefur frá upphafi verið haldin fjöldinn allur af námskeiðum fyrir börn, unglinga og foreldra. Boðið upp á forvarnanámskeið, ráðgjöf og stuðningshópa fyrir foreldra og unglinga. Sérstök sjálfsstyrkingarnámskeið eru fyrir börn og „Stuðningsmeðfrð“ fyrir unglinga sem eru nýkomnir úr meðferð.
- VÍMUVARNAVIKAN
Frá árinu 2004 hafa samtökin verið þátttakandi í Vímuvarnavikunni sem haldin er í október ár hvert. Þar eru einnig þátttakendur frá 20 öðrum félagasamtökum sem áhuga hafa á vímuefnavörnum.
- SAMSTARFSVERKEFNI
Ennfremur taka samtökin þátt í ýmsum fleiri samstarfsverkefnum í forvörnum, m.a. SAMAN-hópnum og forvarna- og fræðsluhópnum „Náum áttum“. Auk þess hafa samtökin tekið þátt í verkefnum á vegum Reykjavíkurborgar og ráðuneyta.
- NÝTT FORELDRAHÚS
Þann 15. apríl 2008 var tekið í notkun nýtt húsnæði Vímulausrar æsku/Foreldrahúss í Borgartúni 6 í Reykjavík. Það var þáverandi félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir sem opnaði nýja Foreldrahúsið að viðstöddu fjölmenni. Flutningi samtakanna og glæsilegri aðstöðu voru gerð skil í sérritinu „Á nýjum stað“ sem dreift var til landsmanna með dagblöðum.
- 25 ÁRA
Á síðustu 25 árum hafa fjöldamargir foreldrar lagt lið í baráttunni við fíkniefnavandann. Með tilkomu Vímulausrar æsku hefur þetta starf verið markvissara og opnað leið fyrir áhugasama foreldra til sjálfshjálpar eða þátttöku í verkefnum. Án sjálfboðinnar vinnu þessa fólks hefðu samtökin ekki náð að lifa í þessi 25 ár.
Senda fyrirspurn til samtakanna
Námskeið hjá VÆ
Skráning á námskeið
Vímulaus Æska