Starfsemi

Foreldrasamtökin Vímulaus æska eru starfandi fyrir alla landsbyggðina. Samtökin voru stofnuð 20. september 1986. Vímulaus æska rekur

Starfsemin

Foreldrasamtökin Vímulaus æska eru starfandi fyrir alla landsbyggðina. Samtökin voru stofnuð 20. september 1986. Vímulaus æska rekur Foreldrahúsið í Borgartúni 6 í Reykjavík en það var opnað 8. apríl 1999. Í nóvember 2006 var opnað Foreldrahús Vímulausrar æsku í Hafnarfirði og er það oft nefnt “Litla Foreldrahúsið”

Samtökin sinna námskeiðahaldi og ráðgjafaþjónustu fyrir fjölskyldur sem eiga börn og unglinga í einhverskonar vanda. Á fyrri árum var að mestu unnið með vímuefnavanda unglinga.  Í dag er þjónustan fjölbreyttari og er einnig unnið með ýmiskonar önnur vandamál, t.d einelti, félagslega erfiðleika og hegðunarvanda.

Samtökin hafa einnig staðið að fyrirlestrum víðsvegar á landinu í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög viðkomandi staða.

Starfsemi Foreldrahússins skiptist í tvo megin flokka; forvarnir og ráðgjöf.

Í Foreldrahúsinu er starfræk fjölskylduráðgjöf, foreldrahópar, sjálfstyrkingarnámskeið og stuðningsmeðferð.

Þegar daglegri starfsemi líkur tekur foreldrasíminn 581-1799 við, en hann er opinn allan sólarhringinn. Samtökin hafa frá upphafi verið öflug í útgáfu fræðsluefnis og hafa gefið reglulega út fjölda af tímaritum og forvarnarbæklingum. Einnig hefur verið gefið út fræðsluefni á geisladiskum og myndböndum.

Senda fyrirspurn til samtakanna

 

Svæði

Upplýsingar

Vímulaus Æska
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 511 6160
vimulaus@vimulaus.is

Póstlisti